
Í varahlutaverslun Kraftvéla starfa 5 starfsmenn, sem allir hafa áratuga reynslu í þjónustu sem þessari.
Varahlutaverslun Kraftvéla sérhæfir sig í að útvega varahluti í allar tegundir landbúnaðartækja, og er Kraftvélar ehf stoltur umboðsaðili fyrir merki sem eru leiðandi, hvert á sínum sviðum.
Allir okkar birgjar eru með neyðarkerfi sem eiga í flestum tilfellum að tryggja okkur vöruna innan 24 – 36 tíma frá pöntun, sé hún ekki til hjá okkur.
Varahlutaverslunin stækkaði lagerrými sitt um tæpa 500 fermetra um mitt ár 2007 og jukum við þá einnig verulega vöruúrval okkar á sama tíma.
Kynntu þér málið, hafðu samband við þjónustudeild okkar og leyfðu okkur að gera þér tilboð í þjónustu eða varahluti.
ÞAÐ KOSTAR EKKI NEITT.
Hægt er að senda þjónustufulltrúum okkar fyrirspurn með því að smella á mynd viðeigandi þjónustufulltrúa.
