
Weidemann - Margt smátt
Weidemann er einn af frumkvöðlum í smíði smærri og meðalstóra mokstursvéla, en fyrirtækið var stofnað árið 1960.
Weidemann framleiðir yfir 35 gerðir af vélum í dag, allt frá smáum liðstýrðum mokstursvélum upp í meðalstóra skotbómulyftara til moksturs og annarra vörumeðhöndlunar.
Þessar gerðir henta mjög vel til landbúnaðar einnig í jarðverktöku og flutningastarfsemi.
Stærð vélanna og lyftigeta gera þær sérstaklega hentugar til vinnu innanhús.
Weidemann býður einnig fjölbreitt úrval aukahluta fyrir þessar vélar .
Hægt er að skoða heimasíðu Weidemann og kynna sér vöruúrval þeirra með því að smella á myndina hér að neðan.
