Sigurvegari í lukkuleik Kraftvéla
Dregið var í lukkuleik Kraftvéla 1. júlí s.l. og hreppti sigurvegarinn 50.000.- króna gjafarbréf frá Kraftvélum
Góð þátttaka var í leiknum og var dregið úr yfir 100 innsendum skráningum. Það var
Jón Geir Ólafsson, Gröf, 880 Kirkjubæjarklaustri sem hlaut vinninginn að þessu sinni.
Markmiðið með leiknum var að kynna fyrir fólki þau vörumerki og þjónustu sem Kraftvélar hafa upp á að bjóða og var leikurinn fyrst og fremst hugsaður fyrir aðila sem starfa innan landbúnaðargeirans og geta nýtt sér vörur og þjónustu fyrirtækisins.
það þarf vart frá því að segja að sigurvegarinn, Jón Geir, var að hæst ánægður með glaðninginn.
Kraftvélar óska honum innilega til hamingju og með von um að vinningurinn komi að góðum notum!
Kraftvélar vilja þakka öllum þeim sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna, hver veit nema heppnin verði með þeim næst!